First Water lýkur 11 milljarða króna fjármögnun

First Water, sem sérhæfir sig í sjálfbæru landeldi, vinnslu og útflutningi á laxi frá Þorlákshöfn, hefur lokið um 11 milljarða króna fjármögnun. Um er að ræða útgáfu um 6 milljarða króna breytanlegs skuldabréfs sem leidd er af núverandi hluthöfum félagsins og um 5 milljarða króna lánsfjármögnun frá Landsbankanum og Arion banka. Með fjármögnuninni mun félagið ljúka framkvæmdum við fyrsta áfanga í uppbyggingu félagsins og auka árlega framleiðslugetu úr 5.000 tonnum í 10.000 tonn af slægðum laxi.

First Water hefur nú frá stofnun sótt um 28 milljarða króna í hlutafé, um 6 milljarða í formi breytanlegs skuldabréfs ásamt um 18 milljarða króna í lánsfé og þannig tryggt sér fjármögnun sem nemur alls um 52 milljörðum króna. Á síðasta ári komu þrír lífeyrissjóðir inn sem nýir hluthafar hjá félaginu og eru nú 8 af 10 stærstu lífeyrissjóðum landsins í hluthafahópi First Water. Fjárfestingarfélagið Stoðir er eftir sem áður stærsti hluthafi félagsins með 33% hlut.

First Water lauk við uppbyggingu átta 25 metra yfirbyggðra landeldistanka í fyrra og uppskar í fyrsta skipti 5 kg slægðan hágæða lax í september 2025. Frá og með janúar á þessu ári hefur First Water hafið reglubundna uppskeru en meðalstærð við uppskeru hefur verið um 4,8 kg slægður með 95% yfirburðarhlutfalli (e. superior ratio) sem þýðir að 95% af fiskinum sem slátrað er fer í hæsta gæðaflokk. Gert er ráð fyrir því að heildaruppskera ársins 2026 verði um 3.000 tonn slægður.

Sölustarfsemi First Water hafi gengið vel og félagið hafi þegar selt stærstan hluta af uppskeru sinni til þessa til kaupenda í Evrópu og Bandaríkjunum. Félagið rekur fiskvinnsluhús í Þorlákshöfn með sérhæfðum vinnslulínum þar sem lax er unninn og pakkað til útflutnings vikulega. Afurðir félagsins hafi vakið athygli á erlendum mörkuðum og meðal viðskiptavina First Water séu kröfuharðir aðilar sem þjónusti mötuneyti þekktra fjármála- og tæknifyrirtækja í Bandaríkjunum og fyrirtæki sem dreifi ferskum hágæða matvælum í matvöruverslanir í Evrópu.

Upphaflegar áætlanir First Water gerðu ráð fyrir að afköst landeldisstöðvarinnar yrðu samtals um 50.000 tonn á ári þegar stöðin væri full byggð og komin í fulla framleiðslu. Reynsla síðustu mánaða bendir þó til þess að framleiðslugeta félagsins verði meiri og er stefnt að því að framleiða um 60.000 tonn árlega af slægðum laxi. Þannig verður framleiðslugeta First Water um 20.000 tonn þegar fyrstu tveir áfangarnir verða komnir í fulla notkun.

Ráðgjafar First Water við skuldbréfafjármögnunina var ARMA Advisory og BBA Fjeldco. Arion banki og Landsbankinn leiða lánsfjármögnun félagsins.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water

„Við höfum náð framúrskarandi árangri í sölu á laxi á stuttum tíma og eftirspurnin eftir 5 kg laxinum okkar hefur farið fram úr væntingum. Það sem skiptir okkur mestu máli er að þessi eftirspurn og áhugi kemur frá kaupendum sem gera miklar kröfur um gæði og áreiðanleika vörunnar. Það staðfestir að við erum að framleiða vöru sem hefur samkeppnisforskot. Þessi fjármögnun gerir okkur kleift að ljúka byggingu á fyrsta áfanga að öllu leyti. Með áframhaldandi framkvæmdum og aukinni framleiðslugetu sjáum við fram á verulega aukningu á útflutningstekjum sem leggur grunninn að frekari uppbyggingu á starfsemi First Water í Þorlákshöfn.“

Next
Next

Húsnæði Líflands selt á 2,9 milljarða króna