Húsnæði Líflands selt á 2,9 milljarða króna

Fagfasteignir ehf., hefur fest kaup á atvinnuhúsnæði að Brúarvogi 1-3 í Reykjavík af Líflandi ehf. Um er að ræða tæplega sjö þúsund fermetra fjölnota stálgrindarhús byggt árið 2008. Húsið er á þremur hæðum og meirihluti rýmisins er nýtt sem vöruhús. Húsnæðið er vel staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í helstu stofnbrautir og Faxaflóahöfn, þá er greið aðkoma að húsinu.

Húsnæði hýsir höfuðstöðvar og starfsemi Líflands sem jafnframt var eigandi húsnæðisins en Lífland stefnir á að flytja undir lok árs 2026.

Kaupverðið nam 2,9 milljörðum króna og höfðu ARMA Advisory og AX Lögmannsþjónusta umsjón með sölu á húsnæðinu.

Next
Next

Skel fjárfestingarfélag selur Gallon til Skeljungs, dótturfélags Styrkáss fyrir 2,9 milljarða króna