Atvinnuhúsnæði fyrir Eik í Hafnarfirði
Eik fasteignafélag hf. og Hamravellir atvinnuhús ehf. hafa undirritað samkomulag um uppbyggingu á iðnaðar- og lagerhúsnæði við Jötnahellu í Hafnarfirði. Húsnæðið verður byggt með þarfir öflugra fyrirtækja að leiðarljósi. Áætlaður framkvæmdartími er um 12 mánuðir. Verkefnið markar áframhaldandi uppbyggingu á Völlunum. Verkland ehf. mun sjá um framkvæmd verkefnisins fyrir Eik þar sem lögð verður áhersla á vandaða hönnun, greiða aðkomu og gott skipulag.
Uppbyggingin mun styrkja atvinnulíf í Hafnarfirði enn frekar og stuðla að fjölgun starfa á svæðinu. Vellirnir eru í hraðri þróun, vel staðsettir og með greiðu aðgengi að Reykjanesbraut.
ARMA Advisory, LOGOS og Venture Legal veittu aðilum ráðgjöf í viðskiptunum.
Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar fasteignafélags
„Þetta samstarfsverkefni gerir Eik fasteignafélagi kleift að sækja fram á einu öflugasta atvinnu- og athafnasvæði landsins með öflugum og reynslumiklum aðilum. Verkefnið er liður í því að auka fjölbreytni eignasafns félagsins og taka virkan þátt í vexti íslensks atvinnulífs.”
Óskar Hafnfjörð Auðunsson, forstjóri Hamravalla atvinnuhúss
„Við erum stolt af því að leggja okkar af mörkum til að efla atvinnuuppbyggingu í Hafnarfirði, sem er orðið eitt mikilvægasta iðnaðar- og þjónustusvæði höfuðborgarsvæðisins.“
Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar
„Það er afar ánægjulegt að sjá áframhaldandi vöxt og fjárfestingu á Völlunum. Uppbygging sem þessi skapar ný tækifæri fyrir fyrirtæki og stuðlar að fjölgun starfa í Hafnarfirði. Þetta verkefni endurspeglar þá miklu eftirspurn sem er eftir vönduðu atvinnuhúsnæði og öflugum rekstri á svæðinu.“