First Wa­ter lýkur 3,5 milljarða hluta­fjáraukningu

Landeldisfyrirtækið First Water í Þorlákshöfn hefur lokið hlutafjáraukningu fyrir um 3,5 milljarða króna. Meirihluti hlutafjáraukningarinnar er frá nýjum hluthöfum en einnig tóku núverandi hluthafar þátt. Þrír lífeyrissjóðir koma inn sem nýir hluthafar og eru nú 8 af 10 stærstu lífeyrissjóðum landsins í hluthafahópi First Water. Fjárfestingarfélagið Stoðir eru eftir sem áður stærsti hluthafi félagsins.

First Water hefur frá stofnun sótt samtals um 27 milljarð króna í hlutafé og um 12 milljarða króna í lánsfé, en félagið tilkynnti um lánsfjármögnun frá Arion Banka og Landsbanka í lok síðasta árs. Félagið hefur þannig tryggt sér fjármögnun sem nemur 39 milljörðum króna. First Water er að ljúka uppbyggingu á fyrsta áfanga af sex í Þorlákshöfn. Félagið hefur þegar byggt og tekið í notkun átta yfirbyggða landeldistanka sem eru 25 metrar í þvermál og hafið vinnslu og útflutning á laxi sem vegur 5 kg. Undirbúningur er hafinn fyrir næstu framkvæmd en um er að ræða uppbyggingu á 28 metra tönkum sem munu tvöfalda árlega framleiðslugetu félagsins úr 5.000 í 10.000 tonn.

Í lok september tilkynnti félagið að það hefði hafið vinnslu og útflutning á 5 kg slægðum landeldislaxi sem félagið segir afar eftirsótta vöru á heimsmarkaði. Framleiðslan var öll seld til viðskiptavina í Bandaríkjunum og í Evrópu. First Water er meðal fyrstu landeldisfyrirtækja á heimsvísu til að slátra og selja á 5 kg slægðan lax. Tilkoma 25 metra eldistankanna gerir félaginu kleift að framleiða þessa eftirsóttu vöru og veita viðskiptavinum jafnt og stöðugt framboð af laxi í hæsta gæðaflokki allan ársins hring, en félagið rekur jafnframt fiskvinnsluhús í Þorlákshöfn með sérhæfðum vinnuslulínum til þess að vinna og pakka laxi fyrir útflutning.

Upphaflegar áætlanir First Water gerðu ráð fyrir að afköst landeldisstöðvarinnar yrðu samtals um 50.000 tonn ári þegar stöðin væri komin í fulla vinnslu. Reynsla síðustu mánaða bendir til þess að framleiðslugeta félagsins verði meiri og er stefnt að því að framleiða um 60.000 tonn árlega. Áætlanir gera ráð fyrir að framleiðslugeta First Water verði um 20.000 tonn þegar fyrstu tveir áfangarnir verða komnir í fulla notkun, en gert er ráð fyrir að öðrum áfanga ljúki árið 2028.

Ráðgjafi First Water við hlutafjáraukninguna var ARMA Advisory.

Eggert þór Kristófersson, forstjóri First Water
„Þessi hlutafjáraukning gerir okkur kleift að halda áfram uppbyggingunni við Laxabraut í Þorlákshöfn. Reynsla okkar af landeldi á laxi í lokuðum 25 metra eldistönkum er afar góð og hafa viðtökur kaupenda við 5 kg laxinum verið framar vonum. Þessi hágæða afurð er afar mikilvæg í okkar rekstri enda mjög eftirsótt á heimsvísu. Við höfum þegar selt samtals um 2.200 tonn af hágæða landeldislaxi.

Verkefnin fram undan hjá First Water er áframhaldandi uppbygging á landeldisstöð okkar í Þorlákshöfn, fjármögnun félagsins og öflug sölu- og markaðsstarfsemi. Um leið og ég býð nýja hluthafa velkomna í hópinn þá vil ég þakka það traust sem fjárfestar hafa sýnt félaginu með áframhaldandi stuðning við uppbyggingaráform þess.“

Next
Next

Síminn kaupir Greiðslumiðlun Ís­lands fyrir 3,5 milljarða